Persónuvernd
Persónuverndarstefna Klár
1. Almennt
Klár leggur áherslu á persónuvernd og öryggi þeirra gagna sem unnið er með í þjónustunni. Klár leitast við að haga meðferð persónuupplýsinga í samræmi við gildandi lög og reglur og með sanngjörnum og gagnsæjum hætti.
Persónuverndarstefna þessi tekur til þeirra persónuupplýsinga sem Klár móttekur, safnar eða vinnur vegna notkunar á hugbúnaðarþjónustu Klár og samskipta við notendur og viðskiptavini.
2. Lagaskylda og ábyrgð
Klár hagar starfsemi sinni í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2016/679.
Viðskiptavinir Klár bera almennt ábyrgð á þeim starfsmanna- og rekstrargögnum sem þeir skrá og vinna í eigin umhverfi. Klár ber ábyrgð á þeirri vinnslu sem tilheyrir eigin rekstri, svo sem samskiptum, þjónustu og öryggi kerfisins.
Klár er rekið af Ásmundi Kristmundssyni. Fyrirspurnum vegna meðferðar persónuupplýsinga skal beint til support@klarapp.is.
3. Persónuupplýsingar og gögn
Klár kann að safna eða taka á móti og vinna með persónuupplýsingar um viðskiptavini og notendur þeirra. Upplýsingarnar geta meðal annars varðað aðgang notanda, hlutverk, starfsstöð, verkefnaskráningar og aðrar upplýsingar sem verða til við notkun þjónustunnar.
Tilgangur vinnslunnar er einkum að hugbúnaðarþjónusta Klár nái ætluðum tilgangi sínum, veiti notendum réttan aðgang, haldi utan um dagleg rekstrarverkefni og virki með öruggum og áreiðanlegum hætti.
Klár krefst ekki kennitölu starfsmanna til innskráningar og hefur ekki sjálfstæðan fjárhagslegan hag af persónuupplýsingum notenda eða viðskiptavina, svo sem með leigu eða sölu þeirra.
4. Miðlun persónuupplýsinga
Klár kann að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila sem þjónusta Klár, til dæmis vegna hýsingar, gagnageymslu, auðkenningar eða annarrar upplýsingatækniþjónustu.
Klár gætir þess að nota persónuupplýsingar aðeins í þeim tilgangi sem þjónustan krefst og veitir ekki öðrum aðgang að þeim nema það sé nauðsynlegt til að veita þjónustuna, heimilt samkvæmt samningi eða skylt samkvæmt lögum.
5. Öryggi persónuupplýsinga
Klár beitir tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum til að vernda persónuupplýsingar, meðal annars með aðgangsstýringu, aðgreiningu fyrirtækja og dulkóðuðum tengingum.
6. Varðveisla og eyðing persónuupplýsinga
Persónuupplýsingar eru aðeins varðveittar eins lengi og þörf krefur vegna þjónustunnar, viðskiptasamninga eða lagaskyldu.
Beiðnum um eyðingu eða óvirkjun notandaaðgangs skal almennt beina til vinnustaðarins sem stofnaði aðganginn eða til support@klarapp.is. Sögulegar rekstrarfærslur kunna að vera varðveittar þegar viðskiptavinur hefur lögmæta þörf fyrir rekjanleika eða lög krefjast þess.
7. Réttur til aðgangs og leiðréttinga
Einstaklingur getur óskað eftir aðgangi að persónuupplýsingum um sig og að rangar eða ófullnægjandi upplýsingar verði leiðréttar, nema lög eða reglur standi því í vegi. Beiðnum um gögn í umhverfi viðskiptavinar skal almennt beina til viðkomandi vinnustaðar.
Ef einstaklingur telur meðferð persónuupplýsinga ekki vera í samræmi við lög getur hann sent kvörtun til Persónuverndar.
Klár mun endurskoða stefnu þessa vegna breytinga á lögum, reglum eða vinnslu persónuupplýsinga. Nýjasta útgáfan verður birt á heimasíðu Klár.
Persónuverndarstefna þessi var fyrst samþykkt 20. júlí 2026.